Rannsóknarmiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti
Rannsóknarmiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti (Icelandic research center for Innovation and Globalization) er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta.
Lögð er áhersla á að þær rannsóknir sem unnar verða innan miðstöðvarinnar skili af sér niðurstöðum sem munu miðla aukinni þekkingu til fræðaheimsins, bæði hérlendis og erlendis.
Einnig að niðurstöðurnar skili aukinni þekkingu inn í íslenskt þjóðlíf sem meðal annars muni stuðla að meiri og betri kennslu í nýsköpun og alþjóðaviðskiptum.
Mynd
![""](/sites/test1.hi.is/files/styles/squared_small/public/2021-04/kri_brautskraning_ef_200627_018.jpg?h=7bfd321b&itok=QuTcvMTT 479w, /sites/test1.hi.is/files/styles/squared_medium/public/2021-04/kri_brautskraning_ef_200627_018.jpg?h=7bfd321b&itok=_BU0ku32 480w, /sites/test1.hi.is/files/styles/squared_large/public/2021-04/kri_brautskraning_ef_200627_018.jpg?h=7bfd321b&itok=HbjAzNHE 768w)
Forsvarsmaður
![]() |
Gunnar Óskarsson | Lektor | 5255107 | gunnaros [hjá] hi.is |
Hlutverk Rannsóknarmiðstöðvarinnar er í meginatriðum fimmþætt:
- Að stunda rannsóknir á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta í sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf og kynna þær
- Að vera bakland kennslu í nýsköpun og alþjóðaviðskiptum og eiga þátt í þjálfun meistara- og doktorsnema í rannsóknum á sviðinu
- Að sinna tengslum og efla samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta
- Að sinna þjónustuverkefnum á sviði nýsköpunar og alþjóðaviðskipta
- Að gangast fyrir atburðum sem varða nýsköpun og alþjóðaviðskipti