Rannsóknarmiðstöð um viðskiptasiðfræði - Siðvís

Rannsóknarmiðstöð um viðskiptasiðfræði (Center of Business Ethics) er vettvangur rannsókna og fræðslu á sviði viðskiptasiðfræði. Starfsemi Rannsóknarmiðstöðvarinnar fellur undir ábyrgð stjórnar Viðskiptafræðistofnunar. Leiðarljós miðstöðvarinnar er bætt siðferði í viðskiptum á Íslandi.

Hlutverk rannsóknarmiðstöðvar er: 

  • Vera leiðandi afl í rannsóknum á margvíslegum viðfangsefnum viðskiptasiðfræðinnar
  • Stuðla að bættu viðskiptasiðferði á Íslandi
  • Stuðla að aukinni umræðu um viðskiptasiðfræði
  • Stuðla að fræðslu um viðskiptasiðfræði, bæði innan háskólasamfélagsins sem og atvinnulífsins, m.a. með námskeiðahaldi og útgáfu fræðsluefnis á sviði viðskiptasiðfræði
  • Koma á virkum tengslum við erlendar rannsóknarmiðstöðvar um viðskiptasiðfræði
Mynd
""

Stjórn rannsóknarmiðstöðvarinnar skipa:

  • Elmar Hallgríms, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, stjórnarformaður
  • Ásthildur Otharsdóttir, ráðgjafi
  • Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands
  • Steinunn Bjarnadóttir, forstöðumaður hjá Íslandsbanka og stjórnarformaður Íslandssjóða
  • Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða
  • Vilhjálmur Jens Árnason, ráðgjafi